Ballett

Ballettkennsla hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar hefur verið frá upphafi skólans og hafa margir nemendur frá okkur haldið áfram í framhaldsnám í dansi bæði hérlendis og erlendis.

Við leggjum mikla áherslu á góða tæknigetu og líkamsburð, gott tóneyra og tjáningu.

Nemendur 8 ára og eldri geta bætt við sig auka valtímum til að auka tæknigetu, styrk og sviðsframkomu.

Allir kennarar eru menntaðir í dansi og eru með mikla reynslu. 

Önnin endar á glæsilegri sýningu.

Námskeiðin

Vorönn 2024 hefst 8. janúar fyrir 8 ára og eldri og 13. janúar 7 ára og yngri

Skráning hefst 15. desember

6 ára ballett

Nemendur fæddir 2017

1x í viku (50 mín í senn)

Hægt að bæta við djass æfingu einu sinni í viku.

Fatnaður:
Fjólublár ballettbolur
Ballettsokkabuxur og ballettskór (ekki svart)
Sítt hár skal vera greitt í snúð og stutt hár greitt snyrtilega frá andliti.

7 – 8 ára ballett

Nemendur fæddir 2015 – 2016

1x í viku (klst. í senn)

Hægt að bæta við djass æfingu einu sinni í viku (7 ára djass sem æfir á mánudögum).

Fatnaður:
Fjólublár ballettbolur
Ballettsokkabuxur og ballettskór (ekki svart)
Sítt hár skal vera greitt í snúð og stutt hár greitt snyrtilega frá andliti.

3. flokkur ballett

Nemendur fæddir 2012 – 2014

2x í viku (klst í senn)

Hægt að bæta við valtímum, sjá fyrir neðan

Fatnaður:
Svartur ballettbolur
Ballettsokkabuxur og ballettskór (ekki svart)
Sítt hár skal vera greitt í snúð og stutt hár greitt snyrtilega frá andliti.

6. flokkur ballett

Nemendur fæddir 2011 og 2010
Lokaður hópur (árs dansreynsla)

3x í viku (1-1,5 klst í senn)

Hægt að bæta við valtímum, sjá fyrir neðan

Fatnaður:
Svartur ballettbolur
Ballettsokkabuxur og ballettskór (ekki svart). Kennari ákveður hvenær nemandi byrjar á táskóm.
Sítt hár skal vera greitt í snúð og stutt hár greitt snyrtilega frá andliti.

7. flokkur ballett

Nemendur fæddir 2009 – 2007
Lokaður hópur (tveggja ára dansreynsla)

3x í viku (1-1.5 klst. í senn)

Hægt að bæta við valtímum, sjá fyrir neðan

Fatnaður:
Svartur ballettbolur.
Ballettsokkabuxur og ballettskór (ekki svart) Kennari ákveður hvenær nemandi byrjar á táskóm.
Sítt hár skal vera greitt í snúð og stutt hár greitt snyrtilega frá andliti.

Valnámskeið í boði

Valnámskeiðin eru kennd einu sinni til tvisvar í viku. Tímarnir hefjast í vikunni 15. – 19. janúar.

Vinsamlega athugið að í sum valnámskeið er gerð krafa um fyrri dansreynslu og að nemendur séu skráðir í grunndeild.

Ekki taka öll valnámskeið þátt í jóla- og vorsýningum skólans.

Sérstakt verð er í boði fyrir nemendur skráða í grunndeild og því ekki fjölgreinaafsláttur í boði.

Söngleikjadans

Frábært val fyrir þá sem vilja efla sviðsframkomu og læra skemmtilega söngleikjadansa.

Hér er lögð áhersla á leiklist, sviðsframkomu, túlkun, líkamsbeitingu og sjálfsöryggi. Kenndir eru dansar við lög úr söngleikjum og mun hópurinn taka þátt í bæði jóla- og vorsýningu skólans.

Í söngleikjadans æfa nemendur tvisvar í viku, þar sem áhersla er lögð á dans, söng og leiklist. Ekki er gerð krafa um fyrri dansreynslu né að nemendur séu skráðir í grunndeild. 

Þrír hópar – kennt tvisvar í viku

Söngleikjadans 1
Byrjendastig, – nemendur fæddir 2015 – 2011.

Söngleikjadans 2
Byrjendastig – nemendur fæddir 2012 og eldri.

Nútímadans

Nútímadans er dansstíll sem ögrar skipulagðri danstæki hins klassíska ballets. Í nútímadansi er lögð áhersla á tjáningu og frelsi. Nemendur fæddir 2013 geta byrjað að æafa nútímadans. 

Í þessum tímum lærir þú undirstöður, tækni og grunnatriði í nútímadansi ásamt því að áhersla er lögð á flæði, snerpu, spuna og tjáningu í dansi.

Hópurinn mun taka þátt í bæði jóla- og vorsýningu skólans.

Ekki er gerð krafa um fyrri nútímadans reynslu né að nemendur séu skráðir í grunndeild fyrir nútímadans 1​

Tveir hópar – kennt einu sinni í viku

Nútímadans 1
Byrjendastig í nútímadansi

Nútímadans 2
Framhaldsstig, eins til tveggja ára nútímadansreynsla 

Nútímadans 3
Framhald, þriggja ára nútímadansreynsla 

Commercial

Commercial dans er gríðarlega vinsæll dansstíll en hann má sjá t.d. í tónlistarmyndböndum, auglýsingum o.fl.

Tímarnir byggjast á því að nemendur læri skemmtilegar og krefjandi kóreógrafíur við ný sem og gömul lög þar sem áherslan er á dýnamík í hreyfingum og framkomu.

Hópurinn mun taka þátt í bæði jóla- og vorsýningu skólans.

Gerð er krafa um tveggja ára dansreynslu í commercial.

Í commercial yngri er ekki er gerð krafa um fyrri dans reynslu né að nemendur séu skráðir í grunndeild.

Tveir hópar – kennt einu sinni í viku

Commercial
Nemendur fæddir 2009 og eldri

Commercial yngri
Nemendur fæddir 2010 – 2011