Forskólinn Glitrandi stjörnur

Forskóli Listdansskóla Hafnarfjarðar, Glitrandi Stjörnur, veitir nemendum sínum frábæran undirbúning fyrir áframhaldandi dansnám. Okkar markmið er að nemendur þroskist félagslega í gegnum hópavinnu, læri að tileinka sér góða líkamsvitund og upplifi fjölbreytta tónlist víðsvegar að úr heiminum.

Börnin kynnast dansinum í gegnum sköpun og leik. Aðaláherslan er á dansgleði og að styrkja líkamslæsi, samhæfingu líkamshluta, hreyfigreind, félagsfærni og sjálfstraust.  

Allir kennarar eru menntaðir í dansi og eru með mikla reynslu. 

Önnin endar á glæsilegri sýningu.

Námskeiðin

Vorönn 2024 hefst 13. janúar hjá Glitrandi stjörnum

Skráning hefst 15. desember

Námskeiðin

2 – 3 ára Ljón og tígrisdýr

Nemendur fæddir 2020-2021

Kennt einu sinni í viku (30 mín í senn) í 10 vikur.

Tveir hópar í boði

  • 2-3 ára ljón æfa á laugardögum frá kl. 09.50-10.20
  • 2-3 ára tígrisdýr æfa á laugardögum frá kl. 10.30 – 11.00

Hefst 13. janúar og lýkur 23. mars (vinsamlega athugið að vetrarfrí verður laugardaginn 24. febrúar)

Skemmtilegir tímar þar sem taktvísi, samhæfing og sköpunargleði er virkjuð í gegnum dans og leiki. 

Foreldrar taka fullan þátt í tímanum með börnunum. Frábært tækifæri fyrir börn og foreldra að eiga gæðastund saman í gegnum leik og hreyfingu.

Fatnaður:
Mæta í þægilegum fötum sem að hindra ekki hreyfingar þeirra í tíma

4 ára Blóm- og Ljósálfar

Nemendur fæddir 2019

Kennt einu sinni í viku (40 mín í senn)

Hópar: 4 ára Ljósálfar á mánudögum og 4 ára Blómálfar á laugardögum

Fatnaður:
Mæta í þægilegum fötum sem að hindra ekki hreyfingar þeirra í tíma.

Fyrir sýningu þurfa nemendur að eiga ballettsokkabuxur og ljósa ballettskó/tátilju.

5 ára Kisur og Fiðrildi

Nemendur fæddir 2018

Kennt einu sinni í viku (45 mín í senn)

Hópar: 5 ára Fiðrildi á þriðjudögum og 5 ára Kisur á laugardögum

Fatnaður:
Mæta í þægilegum fötum sem að hindra ekki hreyfingar þeirra í tíma

Fyrir sýningu þurfa nemendur að eiga ballettsokkabuxur og ljósa ballettskó/tátilju.

Glitrandi stjörnur 2-3 ára

Skemmtilegir tímar þar sem taktvísi, samhæfing og sköpunargleði er virkjuð í gegnum dans og leiki. 

Foreldrar taka þátt í tímanum. Frábært tækifæri fyrir börn og foreldra að eiga gæðastund saman í gegnum leik og hreyfingu.

 

Glitrandi stjörnur 4-5 ára

Nemendur læra

Z

grunnspor í klassískum ballett og djassdansi

Z

að skapa eigin hreyfingar með og án fyrirmæla og tilfinningar og löngun þeirra fái að njóta sín.

Z

að nýta tónlist við túlkun hreyfinga

Z

að skynja púls og hrynjanda tónlistar

Z

á eigin líkama, hreyfigetu og næmi, ásamt því að efla tónhlustun og taktnæmni.

Z

að vinna með öðrum í gegnum hópdansa

Lögð er áhersla á fjölbreytileika í kennslu og munu nemendur meðal annars:

Z

læra dansa við Disney lög (Frozen, Lion King, Moana o.fl.)

Z

fá tækifæri til að skapa sjálf

Z

nýta leikmuni í dansinum

Z

Taka þátt í teygjum og slökun í lok hvers tíma.